Рет қаралды 58
Annar heiðursgesta hátíðarinnar í ár er Guðný Halldórsdóttir. Hún fæddist árið 1954 og nam kvikmyndagerð við London International Film School og útskrifaðist þaðan árið 1981. Í kjölfarið stofnaði hún ásamt fleirum fyrirtækið Umbi Film sem framleiddi myndirnar Skilaboð til Söndru árið 1983 og Stellu í orlofi árið 1986 en Guðný var einn handritshöfunda beggja myndanna. Árið 1989 leikstýrði hún síðan sinni fyrstu mynd, Kristnihald undir jökli, en hún er gerð eftir samnefndri skáldsögu eftir föður hennar, Halldór Laxness. Síðan gerði hún Karlakórinn Hekla sem sló rækilega í gegn og er ein vinsælasta og dáðasta mynd íslenskrar kvikmyndasögu. Meðal annara verka Guðnýjar má nefna Áramótaskaupið 1994, gamanþættina Örninn er sestur, myndinni Ungfrúin góða og húsið (gerð eftir smásögu Halldórs Laxness), Stellu í framboði og Veðramót. Myndir Guðnýjar hafa unnið til ýmissa verðlauna og má nefna að Ungfrúin góða og húsið vann Edduverðlaunin sem besta mynd ársins 1999. Það er mikill heiður að fá Guðnýju sem heiðursgest Kvikmyndahátíðar framhaldskólanna í ár.