Рет қаралды 1,185
Flytjandi - Guðrún Árný Karlsdóttir
Hittumst í draumalandi
texti: Ólafía Rósbjörg Ingólfsdóttir
Ég sé þig birtast mér við hlið
og þú hlærð til mín.
Það er eins og veröld snúist
þegar ég sé þig.
Þú segir ekki einasta orð,
virðist vera einmana er þú
gengur þína leið.
En í draumaveröld
finnum við tvær veginn
út í ný ævintýr.
Undir stjörnubjörtum himni
fylgist þú með mér.
Ég halla aftur augum
og hugsa blítt til þín.
Við hittumst aftur elsku amma
í draumalandi þú og ég.
Þegar ég verð óttaslegin
þá vísar þú mér aftur veginn heim
og mig dreymir þennan draum
og ég vildi óska að þú værir hér,
vaktu ávalt yfir mér.
Undir stjörnubjörtum himni
fylgist þú með mér.
Ég halla aftur augum
og ég hugsa blítt til þín .
Við hittumst aftur elsku amma
í draumalandi þú og ég.
Í draumalandi þú og ég.