Рет қаралды 2,325
Lag / Texti / Söngur: Jón Jónsson
Hljómborð: Ari Bragi Kárason
Hljóðupptaka: Kristján Sigmundur Einarsson
Hljóðblöndun: Sæþór Kristjánsson
Myndband framleitt af obbosí ehf. Tekið upp á Samsung S9+ síma.
Sérstakar þakkir: Samsung Mobile á Íslandi
---------
Dance With Your Heart fagnaði eins árs afmæli sínu síðasta laugardag (27. apríl 2019) og þá mundi ég að ég lumaði á órafmagnaðri útgáfu af laginu. Ari Bragi Kárason jazz-jussaði það eilítið upp fyrir mig og Valdimar Olgeirsson kontrabassaði yfir sig. Takk strákar, takk obbosí fyrir myndbandsstúss, takk Kristján Sigmundur Einarsson fyrir hljóðupptöku, takk Sæþór Kristjánsson fyrir að láta þetta sánda og takk Samsung mobile á Íslandi fyrir að flytja inn king síma og dót og vera alltaf klárir í slaginn með mér.
Þetta var allt saman tekið upp í september 2018 og átti að koma út í framhaldinu en ástkær bróðir minn Friðrik Dór Jónsson ákvað að skella í flýtimeðferð á Samsung Sessjóni á Hata að hafa þig ekki hér til að ná að gefa það út fyrir tónleikana sína í Krikanum. Það var góð ákvörðun því lagið hans öðlaðist nýtt líf og sló í gegn. Á meðan var þetta dæmi sett upp í hillu og er tilvalið að taka það af henni í tilefni afmælisins.
Hér leyfi ég soul-hundinum í mér að leika lausum hala inni í hraðbanka-herbergi á Skólavörðustígnum og vona ég að einhverjir tengi :)