Рет қаралды 6,966
34. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 1. júlí - 4. júlí 2020. Mótið heldur áfram að stækka ár frá ári og var metþáttaka í ár er 212 lið kepptu í 9 deildum. Keppendur voru um 2.000, 204 lið frá 49 félögum en alls voru leiknir 1060 leikir sem gera 29.952 mínútur af fótbolta!
Mótið heppnaðist ákaflega vel og ríkti mikil gleði á mótinu og ekki skemmdi fyrir að veðrið lék við mótsgesti alla fjóra dagana. Þá sýndi KA-TV vel frá mótinu en alls voru sýndir 116 leikir í beinni útsendingu og var þeim öllum lýst af starfsmönnum stöðvarinnar.
Myndband mótsins í ár er unnið af Tjörva Jónssyni.
Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara
Argentíska deildin: Breiðablik 1
Brasilíska deildin: FH 2
Chile deildin: ÍA 2
Danska deildin: Keflavík 3
Enska deildin: Stjarnan 6
Franska deildin: Höttur 2
Gríska deildin: KA 7
Hollenska deildin: Þór 7
Íslenska deildin: Stjarnan 10
Stuðboltar mótsins: ÍBV
Háttvísi og prúðmennskuverðlaun Sjóvá: Ægir
Háttvísisverðlaun Landsbankans og KSÍ: ÍBU-Uppsveitir
Sveinsbikarinn: KFR (háttvísi innan sem utan vallar)