AUSTURSTRÆTI Ég niður' í Austurstræti snarast létt á strigaskónum, með bros á vör og tyggígúmmí í munninum. Ég labba um og horfi á liðið sem er þar í hópum frá lassarónum upp í snobbaðar kerlingar. Austurstræti, ys og læti, fólk á hlaupum í innkaupum, fólk að tala, fólk í dvala og fólk sem ríkið þarf að ala. Þar standa bankarnir í röðum: Lands-Búnaðar-Útvegs, og fyrir utan stendur horaður almúginn. En fyrir innan sitja feitir peninganna verðir og passa að vondi kallinn komi ekki og taki þá.