Рет қаралды 567
Líkaðu við Kópavogur TV á Facebook. / kopavogurtv
Hamraborgarhátíð í Kópavogi var haldin í 3. sinn, laugaradaginn 1. september. Ýmislegt var um að vera fyrri part dagsins. Flóamarkaður var beint úr farangursgeymslu bifreiða. Verslanir, fyrirtæki og íþróttafélög í bænum voru með tilboð og kynningar á starfsemi sinni, vörum, þjónustu. Ungmennahúsið Molinn var með lifandi tónlist, einnig hoppukastali, heitar pylsur, súpa ofl í boði. Keppt var í pylsu kappáti og dansnemar sýndu listir sýnar. Hátíðin er haldin á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við rekstraraðila í Hamraborginni. Tilgangurinn er að glæða miðbæinn lífi og fá gesti til að kíkja í Hamraborgina. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í ágúst 2010.
kopavogurtv@gmail.com