Рет қаралды 307,693
15 þættir með brúðustráknum Hjálpfúsi sem sýndir voru í Stundinni okkar í samstarfi við Rauða krossinn. Þættirnir sýna samskipti Hjálpfúsar og systkinanna Önnu og Ragnars sem leita til hans vegna ýmissa málefna. Þar er meðal annars tekið á fordómum í garð útlendinga, mikilvægi vináttunnar, nauðsyn þess að setja sig í spor annarra, gefa af tíma sínum og kunna að hjálpa öðrum ef eitthvað bjátar á.