Рет қаралды 1,084
/ kopavogurtv .
Jóhann Sigurðarson ásamt einvalaliði tónlistarfólks með lögin úr leikhúsinu. Lög úr Fiðlaranum á þakinu, Vesalingunum, My fair lady, Gæjum og píum, Carusel og fleiri söngleikjum. Einnig lög úr íslenskum söngleikjum, leikritum og revíum eftir Egil Ólafsson, Ágúst Guðmundsson og fleiri.
Hljómsveitarstjórn er í höndum Pálma Sigurhjartarsonar en ásamt honum í hljómsveitinni eru Róbert Þórhallsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur. Jóhann er með góða gesti svo sem Andreu Gylfadóttur og fleiri.