Рет қаралды 610
/ kopavogurtv . salurinn.is
Frá æfingu í Salnum, miðvikudaginn 28. mars.
Þóra Einarsdóttir, sópran, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzósópran, Gunnar Guðbjörnsson, tenór og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari bjóða upp á rússneska söngveislu með aríum og ljóðum eftir Tsjækovskí, Rimsky-Korsakov, Rachmaninov og Glinka. Jafnframt munu þau flytja ljóðaflokkinn Úr þjóðlögum gyðinga op. 79 eftir Dimitri Sjostakovits sem saminn var árið 1948. Er þetta í fyrsta sinn sem ljóðaflokkurinn er fluttur á Íslandi.