No video

Panamaskjölin í Kastljósi

  Рет қаралды 9,917

Lára Hanna Einarsdóttir

Lára Hanna Einarsdóttir

Күн бұрын

Reykjavík media ehf. og Kastljós 3. apríl 2016.

Пікірлер: 4
@hewhoneverdies001
@hewhoneverdies001 5 жыл бұрын
3 dislike? - Sigmundur, Ólöf og Júlíus!
@svanurg
@svanurg 8 жыл бұрын
Panamaskjölin - Kastljós viðtalið við SDG í heild sinniwww.ruv.is/frett/panamaskjolin-kastljos-i-heild-sinni Viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson (SDG) birt í Kastljósi 3 apríl 2016. Sven Bergman (SB) fréttamaður frá Uppdrag Granskning spyr til að byrja með og síðar kemur „skriptan“ Jóhannes Kr. Kristjánsson (JKK) inní viðtalið sem var tekið 11 mars 2016 Viðtalið hefst 21:08 min. Og textinn að hluta samkvæmt þíðingu RUV og svo kaflinn á íslensku.SB: Ég komst að því að íslenski stjórnvöld samþykktu að skattayfirvöld keyptu viðkvæmar skattaupplýsingar. Af hverju er það mikilvægt? SDG: Nú, það er mikilvægt að endurheimta traust í íslensku þjóðfélagi, traust til stjórnvalda, auðvitað, en einnig til fjármálakerfisins og hvernig við högum málum okkar. Fólk missti trú á mörgum stofnunum og svo á stjórnmálunum og bönkunum við hrunið. Og að treysta þýðingarmiklum stofnunum er afar mikilvægt, og dýrmætt fyrir samfélagið. Svo að viljum sýna að við látum einskis ófreistað. SB: Hvað finnst þér sjálfum um fólk og fyrirtæki sem nota skattaskjól til að fela eignir til dæmis? SDG Á Íslandi eins og í flestum norrænum samfélögum eða öllum norrænum samfélögum, býst ég við, leggjum við ríka áherslu á að hver og einn borgi sinn skerf. Af því að við erum með stórt.. Litið er á samfélagið sem stórt verkefni sem hver og einn verður að taka þátt í. Þegar svo einhver svíkst undan í samfélaginu er litið á það mjög alvarlegum augum hér á Íslandi. Við höfum reynt auðvitað að fá fólk til að greiða skatta sína en einnig lagt áherslu á að rannsaka hvað fór áður útskeiðis. Það snýr að einhverju leiti að því að varðveita þau gildi sem flestir hafa í hávegum í okkar heimshluta. Að manni ber að greiða skatta sína. SB: En hvað með þig, herra forsætisráðherra? Hefur þú eða hefur þú sjálfur haft einhver tengsl við aflandsfélag? SDG: Ég sjálfur? Ne, Tja (Well).. Íslensk fyrirtæki, og ég hef starfað hjá íslenskum fyrirtækjum, höfðu tengsl við aflandsfélög og meira að segja verkalýðsfélögin, svo það hefði verið í gegnum slíkt fyrirkomulag en ég hef ætið gefið upp allar mínir eignir og fjölskyldu minnar til skattsins svo að það hefur aldrei verið svo að eigur mínar séu faldar nokkurs staðar. Þetta er óvenjuleg spurning að spyrja íslenskan stjórnmálamann um. Það er eins og verið sé að ásaka mann um eitthvað. En ég get staðfest það að ég hef aldrei leynt neinum eigna minna. SB: Afsakaðu ókurteisina, ég vil ekki vera ókurteis. Ég vildi bara spyrja persónulegrar spurningar um hvort þú hefðir nokkur sinni sjálfur haft tengsl við aflandsfélag. SDG: Einsog ég sagði þá hafa eignir mínar ætið verið uppá borðum. SB: Herra forsætisráðherra, hvað viltu segja mér um fyrirtæki að nafni Wintris? SDG: Það er fyrirtæki, ef ég man það rétt, sem er tengt við eitt þeirra fyrirtækja sem ég gegndi stjórnarmennsku í. Og það hafði reikning sem, einsog ég nefndi, hefur verið talinn fram á skattskýrslu frá því það var stofnað. Mér eru farnar að þykja spurningarnar undarlegar því það er eins og þú sért að ásaka mig um eitthvað þegar þú spyrð mig úr í fyrirtæki sem hefur verið á skattskýrslu minni frá upphafi. Jóhannes Kr Kristjánsson (JKK) tekur sér stól og gengur inní samtalið. SB: Það hlýtur að vera í lagi fyrir mig sem blaðamann að spyrja forsætisráðherrann um persónuleg …. SDG: En þú gefur í skyn að ég hafi ekki borgað skatta af því. SB: Nei, ég spyr bara spurninga. En hvað smáatriðin snertir langar mig til að biðja félaga minn að gera þá á íslensku því ég er ekki með smáatriðin á hreinu. Viðtalið er hér eftir fram á íslensku. JKK: Af hverju hefurðu ekki sagt frá því… SDG: Ég skal taka taka þetta viðtal við þig seinna.. sérstaklega JKK: Nei, af hverju hefurðu ekki sagt frá Því að þú hafir verið tengdur aflandsfélaginu Wintris? SDG: Heyrðu ég skal veita þér þetta viðtal efþú biður mig um viðtal um þetta. JKK: Þú ert í viðtali núna Sigmundur þú getur svarað, þú ert forsætisráðherra þjóðarinnar þú getur svarað þessum spurningum. SDG: Vegna þess, einsog ég var að lýsa hérna áðan þettta kemur fram á skattskýrslum mínum og hefur gert frá upphafi. Það er verið að reyna að gera eitthvað tortryggilegt sem að ég hef gefið upp alla tíð. JKK: Þú segir að þú hafir gefið þetta félag upp alla tíð? SDG: Algjörlega JKK: ee af hverju gafstu þetta ekki upp í hagsmunaskráningu þingmanna eftir að þú varst kjörinn á þing. SDG: Vegna þess að hagsmunaskráning þingmanna náði til tiltekinna atriða og öll þau atriði sem hagsmunaskráning þingmanna nær til voru gefin upp og þetta sem þú ert að tala um var eitthvað sem að var búið til af einhverjum banka á sínum tíma, en gefið upp frá fyrsta degi þannig að .. JKK: Átt þú þetta félag eða..? SDG: Konan mín seldi hlut í fjölskyldufyrirtækinu, það fór í umsjón bankanum, bankinn setti upp eitthvað fyrirkomulag á því, úr varð þetta fyrirtæki, eða, ég kann ekki á þetta allt saman, en þetta var allt gefið upp til skatts frá upphafi. (SDG stendur upp) JKK: En hvaða eignir eru í félaginu SDG: Þú biður mig ekki.. JKK: Við vitum um það að Wintris var kröfuhafi og er kröfuhafi í föllnu bönkunum. SDG: Já já þú ert að spurja mig um hluti sem ég er ekki einusinni búin að kynna mér, þú platar mig í viðtal.. JKK: Þú seldir þinn hlut í félaginu fyrir einn dollara, í félaginu árið 2009 SDG: Nei nei nei, þú ert að spyrja mig um einhverja tóma vitleysu, þú platar mig í viðtal á fölskum forsendum, JKK: Ég er með undirskriftina þína hérna Sigmundur, viltu sjá hana. (sýnir SDG blað) SDG: Já, einmitt, ok, þegar þú biður mig að koma í viðtal þá verður þú að leifa mér að kynna mér atriði sem þú ætlar að spyrja mig um. JKK: Þú hlýtur að vita um félagið, þú seldir konunni þinni félagið, helming í félaginu fyrir einn dollar. SDG: Ég var, seldi ég konunni minni? Ég var ekki einu sinni giftur á þessum tíma. Ég er bara að segja þér. Þetta hefur allt verið gefið upp til skatts frá upphafi. Þið eruð að reyna að gera eitthvað tortryggilegt sem að er ekki tortryggilegt. JKK: Vita félagar þínir í Indefence að þú hafir átt aflandsfélag sem að.. SDG: Hvaða atriði ertu að reyna að búa til hérna. Þetta er fyrir neðan allar hellur. SDG Gengur út úr herberginu. JKK heldur áfram þótt SDG sé farinn: Sigmundur þú hlýtur að geta svarað þessum spurningum. Þú ert forsætisráðherra, þú hefur ekki komið hreint fram.
@Ljosvikingurinn
@Ljosvikingurinn 8 жыл бұрын
Haf þökk fyrir að halda þjóðínni upplýstri.
Kynferðisbrotamaður í 50 ár - 3. hluti
41:09
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 3,3 М.
Júlíus Vífill og fjölskylduarfurinn
29:15
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 8 М.
Kind Waiter's Gesture to Homeless Boy #shorts
00:32
I migliori trucchetti di Fabiosa
Рет қаралды 13 МЛН
Bony Just Wants To Take A Shower #animation
00:10
GREEN MAX
Рет қаралды 7 МЛН
Only survivor of an Icelandic shipping disaster
1:23:30
RÚV
Рет қаралды 17 М.
The Panama Papers: How the rich and famous hide their money (part 1)
19:14
FRANCE 24 English
Рет қаралды 130 М.
Olíuhreinsistöð á Vestfjörðum
33:18
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 1,4 М.
Ómar Vald, Sigursteinn Más, Þóra Kristín og Brynjar Níelsson
36:41
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 2,9 М.
Örlög bílaumboðs og fjölskylduauðs
29:15
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 3,6 М.
Halldór Ásgrímsson í afneitun
21:29
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 4 М.
Bjarni Benediktsson um Vafninga og innherjasvik
23:13
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 4,8 М.
Geir H. Haarde - dómsuppkvaðning og fréttamannafundur
24:44
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 957
Geir H. Haarde um AGS, Icesave, seðlabankastjóra o.fl. í Kastljósi
20:57
Lára Hanna Einarsdóttir
Рет қаралды 1,2 М.
Kind Waiter's Gesture to Homeless Boy #shorts
00:32
I migliori trucchetti di Fabiosa
Рет қаралды 13 МЛН