Það eru nokkrir dagar eftir af jólum og þessir kallar farnir að halda heim á leið. Hef ekki trú á því að þeir þurfi hjálp við það enda ferðast þeir mest á tveimur jafnfljótum. Jólasveinarnir eiga sér auðvitað líf hina 11 mánuði ársins. Líf sem mig langar að gera heimildarmyndir um áfram því að nóg er af sögunum í kringum þessa kalla. Gleðileg jól.