Рет қаралды 514
Sunnudaginn 16. desember kl. 11:00 var hátíðarmessa í Kópavogskirkju í tilefni af 50 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands prédikaði. Sóknarpresturinn Sigurður Arnarson og djákni Kópavogskirkju þjónuðu fyrir altari ásamt fyrrum sóknarprestum Kópavogskirkju, sóknarpresti Digranessafnaðar og prestum sem tengjast Kópavogskirkju. Kór Kópavogskirkju söng undir stjórn Lenku Matéová.