Рет қаралды 162
Fyrir marga sem vilja byrja að hlaupa er stærsta vandamálið akkúrat það. Að byrja að hlaupa.
Hausinn á manni getur sannfært mann um að þetta verði mun erfiðara en það er í rauninni og það er líka auðvelt að ofhugsa hlutina.
Ég hef verið að æfa reglulega í mörg ár og glími ekki við þetta vandamál varðandi hlaup. En... Ég er auðvitað ekki fullkominn og það eru fullt af hlutum sem mig langar að koma upp í vana en ég hef ekki gert.
Þess vegna ætla ég að sýna þér frá minni tilraun til að byggja nýjan vana og þú getur kannski notað sömu aðferðir til að hjálpa þér að byrja að hlaupa.
Ef þig langar að fá öll mín bestu hlauparáð, skráðu þig þá í ókeypis 10 Daga Hlaupaáskorunina mína hérna ⬇️
www.endurafit....
Fylgdu mér á Instagram hérna: / dadifreyrg
Þar deili ég minni eigin daglegu þjálfun, fræði smá og fíflast mikið.
Svo máttu endilega senda mér skilaboð ef það er eitthvað sérstakt sem þú vilt sjá í þessum myndböndum.