Рет қаралды 20,867
Flytjendur: Þórdís Birna og Guðmundur Snorri
Lag: Júlí Heiðar
Texti: Júlí Heiðar og Guðmundur Snorri
Producer: Helgi Sæmundur
Bakraddir: Dagný Halla, Heiða Ólafs og Pétur Örn
Píanó: Pálmi Sigurhjartar
/ springyfirheiminn
Íslenskur Texti
Lífið er svo stutt
Getum við farið til baka
Finnst ég gufa upp
Hverfa’oní gröfina og glatast
Hvað ég skil eftir mig
Minningin mín hún mun lifa
Ætla’að lofa’ykkur því
Lofa að nýta vel tímann
Nú, nú
Ég spring yfir heiminn
Manstu þegar þú baðst um mína hönd til þess að halda
Þegar allt var eins og það var, einfaldara
Bara við!
Og brosið þitt var allt sem mér fannst vert að sjá
Með heiminn milli handa hélt ég kæmist aldrei það hátt
Með ævintýraþrá ég vildi tapa mér og missa
Viss að fætur þínir fylgdu en þú stóðst í stað
Ef að það var málið mitt að mála líf sem ekki særir
Þyrfti ég þá betri vængi sem að bæru okkur bæði
En ég er enn að
Sýna öllum heiminum
Hvað ég get
Sem er meir en ég veit
Svo ég fer
Hraðar og hraðar
Tíminn virðist vera’að
Hverfa burt frá mér
En ég mun rífa sundur vísana
Með berum höndum
Svo þessar tölur myndi línu
Í kringum auðan hring
Sem ég mun bera’á fingri
Vísa hringinn kringum heiminn
Gef mér tíma í að líta um
Og líta við því líf er ekki fallegt
Því það endist
Það er fallegt því að það var til
Lífið er svo stutt…..
Ekki efast um það, einusinni
Einusinni er einum of
Ég hef fengið lof og brennt
Upp brýr að baki mínu oft
Svo þegar þú ert hér og heldur
Utanum mig vona ég stundum að
Saga okkar endi utanvegar
Svo við fáum frið
Brýt niður spegilmynd
Ef ég get
Því þetta’er ekki ég
Sem ég sé
En ég ætla
Að mála þessa liti yfir himinn
En ég ætla
Að fljúga eins og fuglinn þangað yfir
Já ég ætla
Að sýna heiminum, að sýna heiminum
Að sýna heiminum hvað ég get
Vo-ó kafli
Lífið er svo stutt
Lífið er svo stutt
Ég spring yfir heiminn